Psalms 146

1Halelúja. Lofa þú Drottin, sála mín! 2Ég vil lofa Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til. 3Treystið eigi tignarmennum, mönnum sem enga hjálp geta veitt. 4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu, á þeim degi verða áform þeirra að engu. 5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar, sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn, 6hann sem skapað hefir himin og jörð, hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu, 7sem rekur réttar kúgaðra og veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir hina bundnu, 8Drottinn opnar augu blindra, Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta. 9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa, en óguðlega lætur hann fara villa vegar. 10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn, Síon, frá kyni til kyns. Halelúja.
Copyright information for Icelandic